Tilkynning um afkomu A/F HEIM slhf.
Stjórn A/F HEIM slhf., sem er sérhæfður sjóður í rekstri Arctica sjóða hf., hefur í dag samþykkt árshlutareikning sjóðsins m.v. 30. júní 2026. Vaxtatekjur námu 804 milljónum króna (2025: 585 millj. kr.) og vaxtagjöld 804 milljónum króna (2025: 585 millj. kr.). Hreinar fjárfestingatekjur félagsins námu 9,8 millj.kr. á fyrstu sex mánuðum ársins 2026 (2025: 9,4 millj. kr.). Hagnaður félagsins á tímabilinu nam 366 þúsund krónum (2025: 1 þús.kr).
Eignir félagsins námu 15,9 ma. kr. þann 30. júní 2026 og skuldir félagsins námu á sama tíma 15,9 ma. kr. Eigið fé félagsins í lok júní 2026 var 5,7 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Vísað er að öðru leyti til árshlutareiknings félagsins um breytingar á eigin fé félagsins og ráðstöfun hagnaðar.
Sjóðurinn A/F HEIM slhf. hóf rekstur í júlí árið 2021 og starfar samkvæmt lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Sjóðurinn fjárfesti þá í skráðum skuldabréfum sem voru útgefin af Heimavöllum hf. gegn greiðslu með skráðum skuldabréfum útgefnum af sjóðnum, sem eru með veði í fasteignatryggðum seljendalánum til Íveru ehf. (áður Heimstaden ehf.). Skráðir skuldabréfaflokkar A/F HEIM slhf. eru þrír talsins, HEIM070826, HEIM100646 og HEIM071248.
Meðfylgjandi er árshlutareikningur m.v. 30. júní 2026.
Tengiliðir
Nánari upplýsingar veitir - Vanesa Hoti sjóðstjóri - tölvupóstur vanesa@arcticasjodir.is